100% Pure Whey
Af hverju 100% Pure Whey?
100% Pure Whey er hágæða próteinduft með hátt líffræðilegt gildi (BV), 78% prótein sem 100% mysuprótein. Duftið er blanda af mysuprótein concentrate (hreinsað), mysuprótein isolate (einangrað) og er bætt með mikilvægum amínósýrum (L-glútamín, L-arginín og BCAA). Það er fáanlegt í fjölbreyttum og ljúffengum bragðtegundum.
IsoTonic
Þessi frískandi drykkur hjálpar þér að endurfylla vökvabúskapinn, viðhalda orku og endurbæta þau næringarefni sem tapast með svita. Vönduð blanda sem eykur úthald og bætir frammistöðu. Með ISOTONIC heyra lélegar æfingar og krampar sögunni til.
Energy Gel Pro
Energy Gel PRO er hannað fyrir afreksfólk í íþróttum. Með einföldum og flóknum efnasamböndum endurnýjar gelið nauðsynlega orku sem tapast við áreynslu: TRICARB og MCT (Medium Chain Triglycerides). TRICARB notar þriggja þrepa kolvetnablöndu en MCT samanstendur af fitusýrum sem eru flóknari en kolvetni. Þessi næringarsamsetning tryggir orkuna samstundis og einnig til lengri tíma.
Energy Gel PRO er einnig ríkulega búið af mikilvægum vítamínum og steinefnum sem tapast með svita ásamt tárín og L-karnitíni.
BCAA Nano
Ä er hannað og framleitt með allra nýjustu NANO-SYN™ tækni. Sú tækni tryggir að innihaldsefnin frásogast 5 sinnum hraðar og mun betur en nokkru sinni áður. Notaðar eru BCAA (greinóttar keðju amínósýrur) frá vegan uppsprettu. Innihaldið er án sykurs, fitu og litarefna.
Markmið Ä er að útvega BCAA í allra hæsta gæðaflokki, án tilbúinna litar- eða bragðefna. Sérfræðingar voru fengnir til að hanna spennandi og ljúffengar bragðtegundir. Ä er BCAA framleidd með allra nýjustu tækni og markar framtíðina í fæðubótarefnum.
Takmark okkar er að þú getir notað fæðubót og upplifað hana á sem allra náttúrulegastan máta. Með fylgir sænskt hönnuð mæliskeið handgerð úr birki.
Multisalt
ÓMISSANDI SÖLT
Þegar íþróttir eru stundaðar sem taka langan tíma og reyna gríðarlega á úthaldið, eins og t.d. maraþon, þríþraut, fimmþraut, járnmaður o.s.frv, þá tapar líkaminn miklum vökva og söltum. Þetta á enn frekar við þegar veður er heitt. Af þeim steinefnum sem líkaminn svitnar út, er það aðalega natríum (sodium) og klór, en magnesíum í minna magni. Það er ekki nóg að drekka bara vatn til þess að endurheimta og viðhalda jafnvægi á þessum steinefnum. Það getur því verið nauðsynlegt að nota fæðubót til að ná upp forðanum fljótt og áhrifaríkt þegar úthaldsíþróttir eru stundaðar.