CRUSH NÆRINGARSTÖNG
PRÓTEINRÍK NÆRINGARSTÖNG MEÐ STÖKKUM SÚKKULAÐIHJÚP OG ENGUM VIÐBÆTTUM SYKRI
Enginn viðbættur sykur*
Gómsæt “krönsí” áferð
Án aspartame
Súkkulaði hjúpuð
Einstakar og ljúffengar bragðtegundir
*Inniheldur einungis náttúrulegan sykur
Það getur reynst þrautinni þyngra að standast freistinguna að fá sér sælgæti. Gjarnan þurfum við einungis að sjá útlit þess og heilinn fær þau skilaboð að þetta sé unaðslegt á bragðið. Það er hreinlega stundum ekki hægt að segja nei – en nú þarft þú þess ekki! CRUSH næringarstöngin hefur þykkan súkkulaðihjúp, undir honum eru svo stökk lög og loks innst inni er mjúk kremfylling. Þú munt ekki trúa að þetta lostæti flokkast ekki sem svindl sælgæti!
Ekki bara bragðgóður biti – heldur líka frábær uppspretta af próteini.
Ef þér langar í eitthvað sem bragðast eins og ljúffengt nammi, en er algjörlega án viðbætts sykurs og er ríkt af próteini, prófaðu þá CRUSH. Próteinrík, án viðbætts sykurs, með “krönsí” áferð og ótrúlega bragðgóð.
Skoðum staðreyndirnar.
Í hverri próteinstöng:
64g stykkið
20g prótein
Enginn viðbættur sykur*
*Inniheldur einungis náttúrulegan sykur
Hvernig, hvenær og fyrir hverja?
Hægt er að njóta CRUSH næringarstöng hvenær og hvar sem er til að auka prótein í mataræðinu. Ljúffengt snarl eða millimál handa þeim sem huga að hollu mataræði og vilja ekki viðbættan sykur.
Hámaðu CRUSH í þig eða nartaðu í hana – borðaðu hana eins og þér sýnist!
Prótein sem næringarefni
Prótein er orkugjafi sem er uppbyggður úr amínósýrum. Það er nauðsynlegt til að byggja upp vefi líkamans og við þurfum að fá það úr mataræðinu, helst mjög reglulega. Við þurfum prótein til að viðhalda vöðvavef og til að byggja hann upp sterkari þegar hann aðlagast æfingum og hversdagslegum hreyfingum. Þeir sem æfa mikið þurfa enn meira prótein til að geta byggt upp meiri vöðvamassa. Eldra fólk þarf einnig meira prótein.
Líkt og með allar vörur frá BioTechUSA, þá eru innihaldsefnin í CRUSH næringarstönginni örugg og vandlega valin.